Nýtt skipurit GAMMA Capital Management hefur verið innleitt sem innleiða á skýrari aðgreiningu milli deilda og verkefna segir í fréttatilkynningu félagsins. GAMMA Ráðgjöf verður dótturfélag GAMMA en fram til þessa hefur félagið verið systurfélag rekstrarfélagsins.

Forstjóri GAMMA er sem áður Valdimar Ármann , nýr framkvæmdastjóri Ráðgjafar verður Þórður Ágúst Hlynsson og Gísli Hauksson stýrir erlendri starfsemi félagsins.

Aðrir framkvæmdastjórar eru sem áður Agnar Tómas Möller framkvæmdastjóri sjóða, Ingvi Hrafn Óskarsson framkvæmdastjóri sérhæfðra fjárfestinga, Guðmundur Björnsson framkvæmdastjóri reksturs og áhættustýringar og Jónmundur Guðmarsson framkvæmdastjóri sölu og viðskiptaþróunar.

Samhliða breytingum á skipuriti hefur ný stjórn verið kjörin og verður Hlíf Sturludóttir stjórnarformaður, ásamt nýjum stjórnarmönnum Sveini Biering og Gunnari Sturlusyni . Varamenn í stjórn eru Sigurgeir Örn Jónsson og Ásdís Kristjánsdóttir .

Getur ekki setið í stjórn félags sem hann starfar fyrir

Þar sem erlend starfsemi er nú færð undir dótturfélag GAMMA eins og ráðgjöfin lætur Gísli Hauksson af stjórnarformennsku, enda geta starfsmenn fjármálafyrirtækja ekki setið í stjórnum þeirra segir í tilkynningu félagsins.

Hann mun einbeita sér að sífellt vaxandi erlendum verkefnum og uppbyggingu á erlendri starfsemi í London, þar sem GAMMA opnaði skrifstofu árið 2015, og New York. Er ekki síst horft til vaxandi umsvifa erlendis í fasteignaverkefnum, innviðafjárfestingum og aðkomu að lánasjóðum í samstarfi við þarlend fjármálafyrirtæki.

Vöxtur GAMMA hefur verið hraður á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að félagið tók til starfa en í lok árs 2017 var félagið með um 137 milljarða króna í stýringu. Rekstrarhagnaður síðastliðins árs var sá næst besti í 10 ára sögu félagsins. Á þessu ári verður unnið að því að stækka sjóði sem eru í stýringu GAMMA, fjölga tækifærum í fjárfestingum erlendis og auka vöruúrval fyrir viðskiptavini félagsins.