Vöxtur netverslunar Walmart var undir væntingum á síðasta ári sem og kostnaður jókst meira en áætlað var. Hefur hlutabréfaverð í keðjunni lækkaði um 8,25% síðan viðskipti hófust í kauphöllinni í New York fyrir nokkrum mínútum síðan, eða klukkan 14:30 að íslenskum tíma.

Stórmarkaðskeðjan náði um 50% vexti í netverslun sinni á þriðja ársfjórðungi ársins 2017 en á fjórða ársfjórðungi fór vöxturinn niður í 23% sem markaðsaðilar telja ekki nóg til að ná upp forskoti Amazon.

Fyrirtækið hefur síðasta árið verið að kaupa upp nokkur netverslunarfyrirtæki eins og Jet.com, Bonobos og Modcloth, ásamt því að tryggja að viðskiptavinir geti auðveldlega sótt pantanir í verslanir fyrirtækisins.

Hafa breytingarnar kostað fyrirtækið milljarða Bandaríkjadala á síðustu árum, en Fortune tímaritið segir stjórnendur fyrirtækisins vera mjög meðvitaða um að þeir hefðu ekki efni á að hægja á vextinum núna þegar Amazon væri með sterkt forskot.

Þrátt fyrir að vöxtur hefði verið í jólaversluninni á fjórðungnum, eða um 2,6% í Bandaríkjunum í verslunum fyrirtækisins náði tekjur ekki væntingum um 1,37 dali á hvern hlut. Þess í stað námu tekjurnar 1,33 dölum á hlut. Hins vegar stefnir félagið að því að á þessu ári muni tekjurnar nema 4,75 til 5 dölum á hlut.