Henrik Egholm forstjóri Skeljungs hefur sent frá sér Yfirlýsingu vegna nýtingar kaupréttar á hlutabréfum í Skeljungi, en eins og Viðskiptablaðið fjallaði um í gær hagnaðist hann og forstjóri dótturfélagsins Magn um samanlagt 223 milljónir á viðskiptunum sem áttu sér stað innan eins viðskiptadags.

Segist hann þar ekki ætla að selja hlutabréf að andvirði 12 milljóna sem enn séu í hans eigu, en jafnframt segir hann ákvarðanir sínar um breytta stefnu og hagræðingu ekkert með kaupin og endursölu bréfanna að gera. Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um nýlega sagði félagið upp 29 starfsmönnum, þar á meðal á bensínstöðvum Skeljungs sem munu héðan í frá verða sjálfsafgreiðslustöðvar Orkunnar

Segir tímasetningu kaupanna lengi legið fyrir

Egholm segir Viðskiptin í samræmi við kaupréttarsamkomulag sem gert var í aprílmánuði árið 2014, og fjallað sé um það í skráningarlýsingu félagsins frá nóvember 2016, og tilkynningu til kauphallarinnar þann 22. febrúar 2017.

„Tímasetning kaupréttanna hefur því legið fyrir í langan tíma og markaðsaðilar hafa fengið aðgang að öllum verðmótandi upplýsingum sem fyrir liggja,“ segir Egholm. „Það skal áréttað, að umtalsvert magn hlutanna sem ég keypti í Skeljungi er enn í minni eigu – að markaðsvirði um  12 milljónir króna - og engin áform eru uppi um að selja þá.“

Í síðustu viku voru kynntar ákvarðanir um breytingar á skipulagi Skeljungs og hagræðingu í rekstrinum. Þeim breytingum er ætlað að styrkja fyrirtækið á hörðum samkeppnismarkaði, en einnig eru þær liður í því, að auka verðmæti Skeljungs til lengri tíma.

Stjórnendur fyrirtækisins munu halda áfram að bæta reksturinn og festa Skeljung í sessi sem leiðandi afl á markaði sem er að breytast. Tímasetning minna viðskipta með hluti í félaginu hefur ekkert að gera með boðaða hagræðingu, heldur stýrist hún af af ákvæðum í kaupréttarsamningi.

Sem forstjóri ber ég ábyrgð á rekstri Skeljungs. Allar rekstrarákvarðanir mínar miða að því einu, að bæta afkomu félagsins, bregðast við breytingum á markaði og tryggja samkeppnishæfni Skeljungs. Stefnulegar ákvarðanir mínar hafa ekkert að gera með kaup og sölu hlutabréfa, hvorki  mín eigin né annarra.“