Í lok árs 2016 voru konur 25,9% stjórnarmanna fyrirtækja. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja á tímabilinu 1999 til 2006 var 21,3% til 22,3%, og fór svo hækkandi upp í 25,9% en stendur nú í stað. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Í fyrra voru konur 32,3% stjórnarmanna í fyrirtækjum með 50 launþega eða fleiri, en voru 32,7% árið áður. Til samanburðar var hlutfall kvenna í stjórnum stórra fyrirtækja 12,7% árið 9,5% árið 1999.

„Árið 2010 voru samþykkt lög um að hlutfall hvors kyns skyldi vera yfir 40% í stjórnum fyrirtækja með fleiri en 50 starfsmenn, og tóku þau að fullu gildi í september 2013. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með yfir 50 launþega náði hámarki í 33,2% árið 2014, en hefur heldur farið lækkandi síðan þá. Hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja með færri en 50 launþega stendur í stað milli ára, í 25,6%,“ segir í frétt Hagstofu Íslands.

22,1% framkvæmdastjóra konur

Hlutfall kvenna í stöðu framkvæmdastjóra hækkaði lítillega frá fyrra ári, úr 21,9% í 22,1% sem heldur áfram hægfara aukningu sem sjá má allt frá 1999, eða allan þann tíma sem gögn sem liggja fyrir. Hlutfall kvenna í stöðu stjórnarformanna var 23,9% í lok árs 2016, sem er svipað og árið 2015, en þá var það 24,1%.