Vinna verður hafin við skráningu Landsbankans á markað í vetur auk þess sem hlutur í bankanum verður einkavæddur á næsta ári. Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í samtali við Vísi .

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur lengi haft heimild í fjárlögum til að selja allt að 30% hlut í Landsbankanum, en nú heldur ríkissjóður á 98% eignarhlut í bankanum. Bjarni segir hins vegar að sala bankans muni ekki gerast í einu stóru skrefi eða einni stórri einkavæðingu.

„Vonandi getum við skráð Landsbankann og hafið sölu á hlut ríkisins sem yfir tíma myndi mjatlast út til fjárfesta. Ég vonast til þess að við getum unnið í þessu í vetur og látið verða af einkavæðingu og skráningu Landsbankans, semsagt einkavæðingu á hlut í bankanum á næsta ári,” segir hann.

Líklegt er að söluandvirði bankans verði notað til niðurgreiðslu ríkisskulda.