Hlynur Páll Pálsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins. Hlynur hefur lokið B.A. prófi í bókmenntafræði frá Háskóla Íslands og B.A. prófi í leiklist frá Listaháskóla Íslands. Hlynur starfaði sem fræðslustjóri Borgarleikhússins frá 2014 auk þess að vera framkvæmdastjóri sviðslistahópsins 16 elskendur á sama tímabili.

Hlynur hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri Reykjavík Dance Festival, sýningarstjóri í Borgarleikhúsinu og sviðsmaður hjá Þjóðleikhúsinu auk þess sem hann hefur verið aðstoðarleikstjóri í fjölda stórsýninga á borð við Mary Poppins, Billy Elliot og Matthildi.

„Hin mikla og víðfeðma reynsla Hlyns í sviðslistum er mikilsverð fyrir Íslenska dansflokkinn og erum við full tilhlökkunar að fá hann til liðs við okkur, hann er sannkallaður happafengur“ segir Erna Ómarsdóttir, listdansstjóri Íd. Hlynur hefur störf 20. mars, 2019.