Reitir fasteignafélag hf., eigandi Kringlunnar, hefur tilkynnt um að áætlað sé á næstu dögum að ljúka viðræðum um komu H&M í Kringluna.

Ráðgert er að verslunin muni opna seinnihluta ársins 2017, en núþegar hefur verið tilkynnt um að verslanir fyrirtækisins muni opna í Smáralind og Hafnartorgi í miðbænum.