Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,64% í viðskiptum dagsins í dag og endaði í 1.749,12 stigum. Gengi bréfa Marels hækkaði 1,62% og Fjarskipta um 1,37%. Hins vegar lækkaði gengi bréfa HB Granda um 1,32% og VÍS um 0,58%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 715,5 milljónum króna og var hún mest í viðskipðtum með bréf Marels, eða 169,1 milljónir króna.