Frá áramótum hefur hægt talsvert á hækkun launavísitölu og aukningu kaupmáttar launa. Að mati Greiningar Íslandsbanka mun aftur bæta í hækkunartakt þessara stærða þegar líður á árið, þó að hækkunin verði að jafnaði hóflegri en í fyrra. Hægt er að lesa greiningu Íslandsbanka hér.

Launavísitalan hækkaði um 0,4% í mars og árs hækkunartaktur vísitölunnar í marsmánuði mældist 5% og hefur ekki verið hægari í tvö ár. Þó er hækkun launa hröð hér á landi ef miðað er við önnur lönd. Einnig jókst kaupmáttur launa um 0,3% í marsmánuði. Líkt og með launavísitöluna hefur hægt talsvert á aukningu kaupmáttar launa undanfarið, og mældist 12 mánaða hækkunartakturinn 3,3% í mars.

„Ástæða þess að nú hægir á hækkun launa, og þar með aukningu kaupmáttar, liggur að verulegu leyti í mismunandi dreifingu samningsbundinna launahækkana á almennum vinnumarkaði á milli ára. Stærstur hluti launþega á almennum markaði fékk myndarlega hækkun launa á fyrsta fjórðungi ársins 2016. Sú hækkun datt því út úr 12 mánaða taktinum í febrúar síðastliðnum. Næsta samningsbundna hækkun þessa hóps kemur til skjalanna í maí næstkomandi, þegar flestir innan hans fá 4,5% hækkun launa sinna. Mun sú hækkun endurspeglast í myndarlegri hækkun launavísitölu og vísitölu kaupmáttar launa á komandi mánuðum. Meiri óvissa er um launaþróun opinberra starfsmanna, en stórir hópar innan þeirra raða eru með lausa samninga á seinni hluta ársins,“ er tekið fram í greiningu Íslandsbanka.

Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir hóflegri verðbólgu út árið og áætla að kaupmáttur launa muni vaxa um 4,4% í ár frá síðasta ári.