Hörður Ægisson, viðskiptaritstjóri á DV, hefur flutt sig yfir á Fréttablaðið þar sem hann tekur við ritstjórn Markaðarins, viðskiptarits Fréttablaðsins.

Hörður, sem áður starfaði á Morgunblaðinu til fjölda ára, hefur verið ritstjóri viðskipta á DV síðustu tvö ár en lét þar af störfum í gær. Einnig flytur Haraldur Guðmundsson, blaðamaður á DV, sig yfir á Markaðinn með Herði, og munu þeir báður hefja störf á 365 miðlum í næstu viku.

Hafliði Helgason sem verið hefur ritstjóri Markaðarins síðan í lok ágúst lætur samhliða þessu af störfum. Þetta kemur fram í Kjarnanum .