Bankastjórinn og framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka keyptu stærstu hlutina í útboðinu sem staðið hefur yfir síðustu daga af fjárhagslega tengdum aðilum. Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri Arion banka keypti alls 200 þúsund hluti, í útboði Arion banka sem lauk í gær.
Útboðsgengið var að lokum 75 krónur á hlut sem þýðir að hann keypti fyrir samtals 15 milljónir, en eiginkona hans keypti 2 þúsund hluti til viðbótar, á 150 þúsund krónur. Stefán Pétursson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Arion banka keypti einnig 200 þúsund hluti, á samtals 15 milljónir króna.
Måns Höglund stjórnarmaður í Arion banka keypti 100 þúsund hluti, á samtals 7,5 milljónir króna og Iða Brá Benediktsdóttir framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka keypti 97.333 hluti í bankanum, á samtals 7,3 milljónir króna.
Lýður Þór Þorgeirsson framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs og starfandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Arion banka keypti 66.666 hluti á rétt tæpar fimm milljónir króna.
Eva Nanny Christina Cederbalk, stjórnarformaður Arion banka keypti samtals 49.333 hluti á samtals 3,7 milljónir króna en Gísli Sigurbjörn Óttarsson framkvæmdastjóri áhættustýringarsviðs keypti 20 þúsund hluti fyrir 1,5 milljónir króna.
Leiðarar, pistlar og skoðanadálkar um Arion banka:
- 29. maí 2018 - Að fleygja barninu með baðvatninu
- 29. apríl 2018 - Ein dýrasta starfsþjálfunin
- 29. mars 2018 - Hversu söluvænir eru bankarnir?
Fleiri fréttir um málefni Arion banka:
- 15. júní 2018 - Seldu fyrir 39 milljarða í Arion
- 14. júní 2018 - Margföld eftirspurn á 75 krónur á hlut
- 13. júní 2018 - Arion metinn á allt að 56% yfir útboðsgengi
- 13. júní 2018 - Attestor íhugar að selja meira í Arion
- 13. júní 2018 - Hægt að stækka útboð Arion banka
- 12. júní 2018 - Arion í kauphöllina á föstudaginn
- 10. júní 2018 - Stefna Arion vegna United Silicon
- 9. júní 2018 - Ófullnægjandi áhættustýring hjá Arion
- 6. júní 2018 - Pantanabók fyrir hluti í Arion orðin full
- 31. maí 2018 - Arion seldur undir forkaupsréttargengi
- 24. maí 2018 - Dæmdur til að greiða Arion 52 milljónir
- 17. maí 2018 - Ríkið fellur frá forkaupsrétti á Arion
- 17. maí 2018 - Selja að minnsta kosti fjórðung í Arion
- 12. maí 2018 - Bankar í tilvistarkreppu?
- 9. maí 2018 - Starfsmenn fá allt að milljón í kaupauka
- 9. maí 2018 - Ekki söluvænt uppgjör
- 2. maí 2018 - Kaupþing selji fyrst um 30% í Arion
- 2. maí 2018 - Hagnaður Arion dregst saman um 42%
- 18. apríl 2018 - 23 milljarða kröfur í United Silicon
- 14. apríl 2018 - Endurvekja einkennisbúninga
- 16. mars 2018 - Arion framselur atkvæðisrétt í VÍS
- 15. mars 2018 - Engin arðgreiðsla úr Arion
- 14. mars 2018 - Herdís Fjeldsted í stjórn Arion
- 11. mars 2018 - Vilja banna greiðslu Valitor í arð
- 10. mars 2018 - Útboð Arion haldi niðri hlutabréfaverði
- 10. mars 2018 - Áhyggjur af arðsemi Arion
- 8. mars 2018 - Lokakaflinn að hefjast
- 8. mars 2018 - Arion banki lokar útibúum
- 26. febrúar 2018 - Ríkið fær samtals 31 milljarð
- 21. febrúar 2018 - Eign Taconic í Kaupþingi þrefaldast
- 15. febrúar 2018 - Vilja hlut ríkisins á 23,4 milljarða
- 15. febrúar 2018 - Arion kaupir 9,5% í sjálfum sér
- 14. febrúar 2018 - Arion hagnaðist um 14,4 milljarða
- 14. febrúar 2018 - Goldman Sachs bætir við sig í Arion
- 13. febrúar 2018 - Kaupþing selur sjóðum 5% í Arion banka
- 12. febrúar 2018 - Staðfesta tillögu um arðgreiðslu
- 12. febrúar 2018 - Ætla ekki að kaupa í Arion
- 7. febrúar 2018 - Gildi vilji ekki kaupa í Arion
- 6. febrúar 2018 - Arion greiði milljarða í arð fyrir sölu
- 31. janúar 2018 - Fengju hlutinn á 23 milljarða
- 25. janúar 2018 - Vilja kaupa hlut ríkisins í Arion
- 16. janúar 2018 - Kaupþing býður lífeyrissjóðum Arion á ný