Frá og með næsta hausti býðst öllum nemendum í meistaranámi sínu við Háskólann í Reykjavík að leggja sérstaka áherslu á nýsköpunar- og frumkvöðlafræði í námi sínu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HR.

Þar segir að komið hafi verið á fót nýrri áherslulínu í nýsköpun og frumkvöðlafræðum sem ætlað er að veita nemendum færni til að skapa ný tækifæri í síbreytilegu viðskiptaumhverfi nútímans. „Lögð verður áhersla á umhverfi nýsköpunar, skapandi nálgun viðfangsefna, vöruþróun, áætlanagerð, stjórnun og fjármál. Meistaranemar við allar deildir háskólans sem ljúka 30 einingum (ECTS) á þessu sviði eiga þess kost að útskrifast með prófgráðu þar sem fram komi að þeir hafi lokið meistaranámi á sinni námsbraut með áherslu á frumkvöðla- og nýsköpunarfræði,“ segir í tilkynningunni.

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, segir um nýju áherslulínuna: „Störf framtíðarinnar eru að stórum hluta óþekkt. Það er því ekki nóg fyrir útskrifaða nemendur að vera undirbúinn til að takast á við skilgreind og afmörkuð verkefni að loknu háskólanámi. Þeir þurfa einnig að geta haft frumkvæði að verkefnum, mótað þau og framkvæmt í samstarfi við aðra. Þess vegna erum við mjög stolt af því að geta nú boðið öllum nemendum okkar í meistaranámi, óháð því hvaða nám þeir stunda, upp á áherslulínu í nýsköpun og frumkvöðlafræði.“