Hreiðar Hermannsson hefur tekið við starfi hótelstjóra Stracta hótels á Hellu. Hann tekur við starfinu af Sólborgu Steinþórsdóttur, sem lætur af störfum af persónulegum ástæðum. Þetta kemur fram í tilkynningu.
„Eigendur hótelsins þakka Sólborgu fyrir vel unnin störf við uppbyggingu hótelsins á Hellu og óska henni velfarnaðar í framtíðinni,“ segir í tilkynningunni.
Hreiðar Hermannsson sem nú tekur við hótelinu hefur komið að hótelrekstri í mörg ár, en hann hefur meðal annars staðið að uppbyggingu Stracta hótela á Suðurlandi ásamt Hermanni Hreiðarssyni, syni sínum.