Ársreikningur HS Veitna var birtur í dag. Þar kemur fram að heildarhagnaður ársins 2016 nam 736 milljónum króna á móti hagnaði ársins 2015 sem hljóðaði upp á 780 milljónir. EBITDA Veitna árið 2016 nam 1.899 milljónum samanborið við 1.896 milljón krónur árið áður.

Í tilkynningu frá HS Veitum kemur fram að minnkun hagnaðar um 44 milljónir króna skýrist með hækkun fjármagnsliða upp á 23 milljónir króna og hækkun annars rekstrarkostnaðar um 28 milljónir króna. Tekjur félagsins lækkuðu um 73 milljónir króna vegna minni vatnssölu.

Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir HS Veitna hf. þann 2016 bókfærðar 20.704 milljónir króna. Eignir hækkuðu um 399 milljónir króna frá ársbyrjun. Fjárfestingar í veitukerfum 2016 námu 1.343 milljónir. Eigið fé HS Veitna í lok árs 2016 nam 8.760 milljónum króna.

Veltufjárhlutfall var 2,52 í lok árs 2016 samanborið við 3,49 í árslok 2015. Hluthafar í HS Veitum eru fjórir og þar af áttu þrír yfir 10% hlut í félaginu. Reykjanesbær á 50,10%, HSV Eignarhaldsfélag 34,38% og Hafnarfjarðarbær 15,42%.