VIRK Starfsendurhæfingarsjóður hefur samið við Advania um smíði á hugbúnaði sem mun gera sérfræðingum VIRK kleift að ákveða, í samráði við viðskiptavini, þá starfsendurhæfingu sem skilar árangri og setja fram markvissa áætlun með aðkomu sérfræðinga VIRK sem og annarra þjónustuaðila.

Hugbúnaðurinn mun auk þess halda utan um heildarferlið við framkvæmd og framvindu starfsendurhæfingarinnar á öllum stigum hennar.

Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK bindur miklar vonir við að hugbúnaðarinnleiðingin muni bæta þjónustu við einstaklinga í starfsendurhæfingu og auka hagkvæmni með markvissari þjónustuferlum og upplýsingagjöf.

Hugbúnaðurinn er smíðaður í Outsystems, hraðþróunarumhverfi (RAD) sem flýtir þróun ferla og smíði snjalltækjalausna og er sniðið að þörfum fyrirtækja sem leggja áherslu á skjótan afhendingarhraða og sveigjanleika.

„Outsystems-viðskiptavinum hjá Advania hefur fjölgað hratt að undanförnu enda mætir kerfið vel þeim kröfum sem markaðurinn hefur um afhendingarhraða og sveigjanleika“ segir Sigrún Ámundadóttir, framkvæmdastjóri Hugbúnaðarlausna hjá Advania á Íslandi.

Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga í kjölfar veikinda eða slysa með árangursríkri starfsendurhæfingarþjónustu.