Hörður og Árni Sigurbjarnarsynir, stofnendur Norðursiglingar á Húsavík hafa hlotið viðurkenninguna Brautryðjandi  ársins 2017. Þetta er í fjórða sinn sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands veitir þessa viðurkenningu. Bræðurnir stofnuðu fyrirtækið árið 1995 og hófu að bjóða ferðamönnum hvalaskoðun úti fyrir Norðurlandi. Fyrsta sumarið fluttu þeir 1.760 gesti en í dag er velta þjónustu tengdri hvalaskoðun á Íslandi talin í milljörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýsköpunarmiðstöð.

„Viðurkenningin er veitt fyrir framúrskarandi atorku og hugvit á sviði verðmæta- og nýsköpunar,“ segir þar.

Rúmlega 300 manns voru viðstaddir ársfund Nýsköpunarmiðstöðvar. Þar rifjaði framkvæmdastjóri Nýsköpunarmiðstöðvar upp að árið 1985 hafi fólk á fundi í Reykjavík tekið illa í þá hugmynd að hvalaskoðun gæti orðið atvinnugrein og las meðal annars upp þessa tilvitnun í blaðagrein frá 1985:

„Yfirleitt tók fólk þessu ekki sérlega vel, fannst þetta ósmekklegt og lét það í ljós.“ Ónefndur alþingismaður taldi þessa uppástungu (þ.e. hvalaskoðun sem atvinnugrein) þá fáránlegustu sem hann hefði lengi heyrt og sýndi hún gífurlega vanþekkingu á íslenskum aðstæðum.

Fyrri verðlaunahafar eru Róbert Guðfinnsson, arthanfamaður á Siglufirði, frú Vigdís Finnbogadóttir og Gísli Einarsson, sjónvarpsmaður.

Hvalaskoðun á eikarbátum

„Norðursigling ehf. var stofnuð á Húsavík árið 1995 og var fyrst íslenskra hvalaskoðunarfyrirtækja til að bjóða upp á reglulegar hvalaskoðunarferðir. Eitt helsta markmið Norðursiglingar er varðveisla íslenskra eikarbáta. Tveir bátanna hafa verið endurbyggðir sem tveggja mastra seglskip.


Nýr skrúfubúnaður sem þróaður hefur verið sérstaklega hefur þá sérstöðu að hægt er að hlaða rafgeyma skipsins undir seglum. Í hvalaskoðunarferðum mun rafmótorinn knýja skrúfubúnaðinn en þegar skipið siglir fyrir seglum er hægt að breyta skurði skrúfublaðanna og nýta búnaðinn til að hlaða rafmagni inn á geyma skipsins. Verkefnið hefur m.a. verið unnið í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands , “ segir í lýsingu á fyrirtækinu.