Fasteignamiðstöðin er með jörðina Hvassahraun til sölu. Jörðin er hugsuð sem hugsanlegt flugvallarstæði í skýrslu stýrihóps um flugvallarkosti á höfuðborgarsvæðinu sem kom út í gær, og er sá flugvallarkostur sem kom best út í skýrslunni.

Hjá Fasteignamiðstöðinni fást þær upplýsingar að nokkrir fyrirspurnir hafi borist vegna jarðarinnar síðan í gær en að ekkert tilboð hafi þegar borist. Jörðin hljóti þó að teljast spennandi fyrir fjárfesta.

Auglýsing vegna jarðarinnar var sett inn á fasteignasíðu mbl.is í janúar 2011 og var henni síðast breytt í mars síðastliðnum. Í auglýsingunni segir að jörðin sé víða góð til bygginga og að staðsetningin sé áhugaverð, meðal annars vegna hugsanlegs jarðhita og fyrirsjáanlegra framkvæmda á næstu árum.

49 manns hafa skoðað auglýsinguna í vikunni. Ekkert uppsett verð er í auglýsingunni heldur er leitað tilboða.