Í sumar bar sérstaklega á því að stundvísi í flugsamgöngum við Keflavíkurflugvöll væri ábótavant, en heilt yfir hefur verið skortur á því að flugfélög hér á landi halda áætlun síðustu misserin að sögn Túrista . Þannig var til að mynda einungis rétt um þriðjungur af brottförum frá Keflavíkurflugveli á réttum tíma í júní í sumar.
Í rannsókn greiningarfyrirtækisins OAG voru þau tíu stundvísustu flugfélög landsins tekin saman, en ekki er að undra samkvæmt áðurnefndu að hvorugt íslensku félaganna er þar á meðal. Ekki kemur þó fram hve hátt hlutfall ferða hjá Icelandair eða Wow air er á réttum tíma.
Lettneska flugfélagið Air Baltic mældist hins vegar það stundvísasta, með 89,17% allra ferða á réttum tíma. Næst á eftir kom hið hollenska KLM með 84,52%, og svo hið spænska Iberia með 83,04% ferða á réttum tíma.
Hér má sjá listann í heild sinni ásamt með heildarhlutfalli ferða á réttum tíma:
- 1 airBaltic 89.17
- 2 KLM 84.52%
- 3 Iberia 83.04%
- 4 Alitalia 82.87%
- 5 Transavia 81.98%
- 6 Siberia Airlines 81.75%
- 7 Aer Lingus 78.90%
- 8 Aegean Airlines 78.32%
- 9 Air Europa 78.15%
- 10 Finnair 77.69%