Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,75% og er 7.641 stig við lok markakarð, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Markaðurinn hækkaði af krafti í morgun en klukkan 10:45 hafði Úrvalsvísitalan hækkað um 1,4%, að því er fram kemur í Morgunkorni Glitnis. Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,4% í gær.

Veltan nam 9,1 milljarði króna.

Atlantic Petroleum hækkaði um 4,07%, Bakkavör Group hækkaði um 1,95%, Straumur hækkaði um 1,63%, Atorka Group hækkaði um 1,22% og Teymi hækkaði um 1%.

Föroya banki lækkaði um 3,23%, Eik banki lækkaði um 2,58%, Tryggingamiðstöðin lækkaði um 1,08%, Eimskip lækkaði um 1,02% og Icelandair Group lækkaði um 0,39%.

Gengi krónu styrktist um 0,6% og er 121,1 stig.