Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,16% og er 7.889 stig við lok markaðar, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Veltan nam um sex milljörðum króna.

Bakkavör Group hækkaði um 1,87%, Nýherji hækkaði um 1,86%, Flaga Group hækkaði um 1,42%, Icelandic Group hækkaði um 1,37% og Föroya banki hækkaði um 1,15%.

Straumur lækkaði um 0,52%, Eik banki lækkaði um 0,15% og Kaupþing lækkaði um 0,09%.

Gengi krónu styrktist um 0,26% og er 118 stig.