Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 348,5 stig í maí 2008 og hækkaði um 0,5% frá fyrra mánuði.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun á vísitölu íbúðarverðs síðustu þriggja ára, eða frá því í maí 2005.

Þar sést að íbúðarverð hefur lækkað jafnt og þétt frá áramótum en hækkar nú í fyrsta skipti á árinu eða um 0,5% sem fyrr segir.

Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 1,6%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 1% og hækkun síðastliðna 12 mánuði var 3,8% samkvæmt tölum frá Fasteignamati Ríkisins.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.