Íbúðalánasjóður hefur samið við Félag fasteignasala (FF) um áframhaldandi sölu á eignum sjóðsins en félagið kemur fram fyrir hönd félagsmanna sinna sem eru löggiltir fasteignasalar um land allt.  Félagsmenn FF  hafa selt hátt í 3.000 eignir fyrir sjóðinn á grundvelli samstarfssamnings síðustu sex árin. Samningurinn felur í sér að allir löggiltir fasteignasalar á landinu geta unnið fyrir sjóðinn og fara eignir því í sölu á fasteignasölum um land allt. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Frá því að samstarf Íbúðalánasjóðs og FF hófst í upphafi árs 2011 hafa 2.880 eignir verið seldar og fasteignasalar hafa gert yfir 11.000 verðmöt fyrir sjóðinn. Söluvirði þessara eigna er um 40 milljarðar króna. Kaupendur eru fyrst og fremst einstaklingar og fjölskyldur.

„Samstarf Íbúðalánasjóðs og Félags fasteignasala hefur verið farsælt síðustu sex árin. Samningurinn sem við undirrituðum í dag tryggir að sala eigna Íbúðalánasjóðs sé gagnsæ og hlutlæg,“ segir Unnur Míla Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjárstýringar Íbúðalánasjóðs við tilefnið.