Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 302,6 stig í desember sl. og lækkaði um 1,2% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Þetta er mesta lækkun á milli mánaða frá því í júlí á síðasta ári þegar vísitalan lækkaði um 1,3% á milli mánaða.

Vísitala íbúðaverðs sl. 3 ár. Heimild: Þjóðskrá Íslands
Vísitala íbúðaverðs sl. 3 ár. Heimild: Þjóðskrá Íslands
© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan má sjá þróun vísitölu íbúðaverðs síðastliðin þrjú ár. Þar sést hvernig vísitalan hefur lækkað umtalsvert síðan í janúar 2008 þó vissulega hafi hún tekið sveig upp á við frá þeim tíma, t.d. í ágúst í fyrra og sl. vor. Þannig hefur íbúðaverð lækkað um 15,3% á föstu verðlagi síðan í janúar 2008 þegar vísitalan náði hámarki (357,4 stigum).

Á fyrstu mánuðum síðasta árs, þ.e. fram að maí, hafði hins vegar verið lítil breyting á íbúðaverði eins og sjá má á myndinni. Íbúðaverð lækkaði um 0,2% frá því í janúar á síðasta ári.

Síðastliðna 3 mánuði hefur vísitala íbúðaverðs lækkað um 0,4%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 1,3%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs. Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.