Fjöldi kaupsamninga og velta á íbúðamarkaði á föstu verðlagi hafa vaxið á undanförnum mánuðum ef miðað er við 12 mánaða hlaupandi meðaltal eftir að hafa farið minnkandi í nokkurt skeið þar á undan. Þetta kemur fram í greiningu Íbúðalánasjóðs .

Þá var meðalsölutími bæði sérbýlis og fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu um það bil viku styttri í júní en hann var í janúar. Í júní liðu að meðaltali 55 dagar milli þess sem íbúð í fjölbýli var síðast auglýst og kaupsamningur vegna hennar undirritaður. Um 66 daga tók að selja sérbýli að meðaltali sé miðað við sama mælikvarða.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,3% milli júní og júlí samkvæmt nýbirtum tölum Þjóðskrár Íslands og hefur nú hækkað um samtals 5,2% undanfarið ár. Árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mælist sú sama í júlí eins og í júní. Í júlí í fyrra hafði íbúðaverð hækkað um 19% á einu ári og eru verðhækkanir á íbúðum því talsvert hóflegri en fyrir ári síðan.

Hlutfall vísitölu íbúðaverðs og vísitölu neysluverðs, sem líta má á sem raunverð íbúða, hækkaði um 0,3% á milli júní og júlí og hefur nú hækkað um 2,4% á undanförnum 12 mánuðum. Árshækkun raunverðs íbúða á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki mælst minni á þennan mælikvarða síðan í ágúst 2013.

Sérbýli hefur hækkað talsvert meira í verði en fjölbýli undanfarna mánuði og hélt sú þróun áfram í júlí. Verð fjölbýlis hækkaði um 0,2% milli mánaða en verð sérbýlis um 0,8%. Fjölbýli hefur nú hækkað um 3,8% á undanförnum 12 mánuðum en sérbýli um 8,9%.