Þórunn Eydís Hraundal, nemi í gæðastjórnun við Fisktækniskóla Íslands, og Herborg Þorláksdóttir, nemi í Marel-vinnslutækni við Fisktækniskóla Íslands, hlutu í gær tvo veglega námsstyrki úr IceFish-menntasjóði Íslensku sjávarútvegssýningarinnar.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti þeim styrkina við hátíðlega athöfn í Íslenska sjávarklasanum. Hvor styrkur er upp á 500 þúsund krónur.

„Það er mikil upphefð að fá IceFish-styrkinn og hjálpar mér mikið fjárhagslega,“ segir Herborg Þorláksdóttir, nemi í Marel-vinnslutækni við Fisktækniskóla Íslands. „Ég var hætt við námið því að ég sá ekki fram á að geta fjármagnað það, verandi nýkomin úr öðru námi. En styrkurinn úr IceFish-námssjóðnum gjörbreytir stöðunni og ég er ákaflega stolt og þakklát.“

Þórunn Eydís Hraundal, nemi í gæðastjórnun við Fisktækniskóla Íslands, segir styrkinn hjálpa sér við að ná lengra á menntabrautinni í sjávarútvegsfræðum og vera sér stuðningur á mörgum sviðum.

„Hann er jákvæð og óvænt viðurkenning fyrir mig persónulega og það hvernig ég hef lagt mig fram í náminu, og styrkir þá ætlun mína að halda til framhaldsnáms í sjávarútvegs- og viðskiptafærði við Háskólann á Akureyri að loknu námi hjá Fisktækniskóla Íslands,“ segir Þórunn Eydís.

„Mér er það heiður að afhenda þessa veglegu styrki úr IceFish-námssjóðnum, enda skiptir miklu máli að hvetja til dáða nemendur sem taka þátt í að skapa ný tækifæri í sjávarútvegsgreinum,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, þegar hún afhenti styrkina. „Í sjávarútvegi og tengdum greinum eru að skapast fjölmörg ný störf samfara auknum rannsóknum, tækniþróun og nýsköpun, og menntun og menntastefna hlýtur ávallt að horfa til þess sem hæst ber í þeim efnum. Námsstyrkirnir úr IceFish-sjóðnum örva nemendur til að skara fram úr og ná árangri í sínum fögum og þeim ber að fagna.“

Við afhendingu styrkjanna tilkynnti Marianne Rasmussen-Coulling, framkvæmdastjóri Íslensku sjávarútvegssýningarinnar, að ákveðið hefði verið að veita áframhaldandi námsstyrki úr sjóðnum næstu tvö árin hið minnsta, en næsta IceFishsýning er haldin árið 2020.

„Við höfum sem skipuleggjendur Íslensku sjávarútvegssýningarinnar ríkan skilning á mikilvægi áframhaldandi nýsköpunar og þróunar í útgerð- og landvinnslu á Íslandi,“  sagði Rasmussen-Coulling. „Við teljum að besta leiðin til að efla það starf felist í að styðja við bakið á þjálfun og menntun yngri kynslóðarinnar. Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð frá styrkþegum okkar 2017 og okkur er það því mikil ánægja að geta núna í ár, 2018, styrkt tvo mjög frambærilega og efnilega nemendur Fisktækniskóla Íslands. Við voum að þessir styrkir muni ekki aðeins gagnast þeim heldur líka sjávarútveginum í heild sinni á komandi árum. Þá höfum við ákveðið að halda áfram þessu verkefni og veita framúrskarandi námsmönnum í sjávarútvegsgreinum samsvarandi styrki næstu tvö árin hið minnsta.“

Í kjölfar Íslensku sjávarútvegssýningarinnar 2014 ákváðu forsvarsmenn hennar að veita veglega námsstyrki til þeirra sem stunduðu nám í greininni. Fyrstu styrkirnir voru veittir árið 2017.

Umsóknir um styrki voru metnar af dómnefnd sérfræðinga í sjávarútvegi, sem í sitja Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólastjóri Fisktækniskóla íslands, Sigurjón Elíasson, fræðslu- og þróunarstjóri á alþjóðasviði Marel, Guðbergur Rúnarsson, verkfræðingur og framkvæmdastjóri Samtaka fiskvinnslustöðva, Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, og Bjarni Þór Jónsson, fulltrúi Mercator Media/Íslensku sjávarútvegssýningarinnar á Íslandi.