Icelandair hefur fellt niður flug félagsins til og frá Seattle í kvöld vegna verkfallsaðgerða flugmanna.  Icelandair hafði áður felt niður 26 flug í dag föstudag vegna heilsdagsverkfalls FÍA, en vegna yfirvinnubanns og ófyrirséðra forfalla var ekki komist hjá því að fella einnig niður Seattleflug FI 681 og FI680 í kvöld. Um 300 farþegar voru bókaðir á flugin.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að vegna yfirvinnubannsins megi búast við frekari röskun á flugi félagsins og að einstök flug þurfi að fella niður með skömmum fyrirvara. Icelandair segist ætla eftir fremsta megni að reyna að leysa úr þeim vanda sem niðurfelling flugsins skapar viðskiptavinum m.a. með því að flytja þá yfir á flug annarra flugfélaga eins og hægt er, einnig að færa farþega á önnur flug Icelandair til og frá þessum áfangastöðum ef það er unnt eða breyta farmiðum með öðrum hætti. Þeir sem hætta við ferð sína munu fá endurgreitt.

„Um leið og við biðjum viðskiptavini velvirðingar á þessari röskun þá vil ég koma á framfæri þakklæti til þeirra fyrir þann skilning og þolinmæði sem þeir sýna við erfiðar aðstæður,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.