Hlutabréf í Icelandair Group hafa hækkað mikið í viðskiptum dagsins í Kauphöllinni, en félagið birti hagstætt uppgjör eftir lokun markaða í gær.

Hlutabréfin hafa hækkað um 6,38% þegar þetta er skrifað í 1.126 milljón króna viðskiptum. Hagnaður Icelandair Group á síðsta ári var 14,1 milljarðar króna og jókst um 67% milli ára. Lækkandi olíuverð og aukin eftirspurn á Norður-Atlantshafsmarkaði hafði jákvæð áhrif á uppgjörið.