Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,37% í dag og stendur því nú í 1.743,01 stigi. Hún hefur hækkað um 1,89% frá áramótum. Heildarvelta á mörkuðum nam 5,3 milljörðum, þar af var velta á hlutabréfamarkaði nam 948 milljónir króna og 4,3 milljörðum á skuldabréfamarkaði.

Gengi bréfa Icelandair Group lækkaði um 2,38% í 276,7 milljón króna viðskiptum. Hins vegar hækkaði gengi hlutabréfa Sjóva um 1,93% í 215 milljón króna viðskiptum. Velta með bréf Haga nam 204 milljónum króna og gengi hlutabréfanna lækkaði um 1,13% í viðskiptum dagsins.

Vísitölur GAMMA

Markaðsvísitala GAMMA hækkaði um 0,2% í dag í 5,2 milljarða viðskiptum. Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,2% í dag í 0,9 milljarða viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,5% í dag í 4,1 milljarða viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,6% í 1,6 milljarða viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,2% í 2,4 milljarða viðskiptum.