Icelandair Group hefur ákveðið að hefja söluferli á Icelandair Hotels og fasteignum sem tilheyra hótelrekstri. Samhliða ákvörðun um að setja Icelandair Hotels í söluferli hefur verið ákveðið að Iceland Travel  og VITA verði hluti af kjarnastarfsemi Icelandair Group.

Tilgangurinn er að styrkja enn frekar sölustarfsemi á pakkaferðum og tengdum þjónustuþáttum innan Icelandair Group segir í fréttatilkynningu.

Icelandair hótel rekur 13 hótel: Reykjavík Natura, Reykjavík Marina, Hilton Reykjavík Nordica, Canopy Reykjavik | City Centre, Reykjavík Konsúlat Hótel og Hótel Alda. Á landsbyggðinni eru Icelandair hótel á Akureyri, við Mývatn og á Héraði. Einnig eru sérleyfishótel á Flúðum, Klaustri, Hamri og í Vík. Icelandair hótel reka einnig sumarhótelkeðjuna Hótel Eddu, með tíu hótel um land allt.

Um er að ræða alls 1.937 herbergi á landinu öllu, 876 í Reykjavík og 450 herbergi á landsbyggðinni í rekstri allt árið en þar að auki 611 Eddu hótelherbergi í sumarrekstri. Þá stefna Icelandair Hotels að opnun nýs hótels við Austurvöll í samstarfi við Hilton árið 2019.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group segir þetta vera næsta skref í kjölfar þess að starfsemi félagsins var skipt í tvennt, alþjóðaflugstarfsemi og hins vegar fjárfestingar. „Við stígum nú næsta skref og höfum ákveðið að hefja ferli sem miðar að því að selja meirihluta í hótelfélagi okkar; Icelandair Hotels. Við horfum með sama hætti á þær fasteignir sem tilheyra þessum rekstri,“ segir Björgólfur.

„Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á félaginu að undanförnu, bæði frá innlendum og erlendum aðilum. Markmið okkar með þessari breytingu er að skerpa enn frekar á kjarnastarfsemi okkar, alþjóðaflugstarfseminni. Þar ætlum við að fjárfesta í frekari vexti félagsins, í stafrænum lausnum, aukinni sjálfvirkni og nýjum flugvélum.“

Við ferlið verður horft til þess að hámarka virði eignanna á sama tíma og horft verður til hagsmuna íslenskrar ferðaþjónustu, starfsmanna og annarra hagsmunaaðila segir í fréttatilkynningunni.