Icelandair ehf., dótturfélag Icelandair Group hf., hefur undirritað samninga um sölu og endurleigu á fjórum Boeing 737 MAX flugvélum. Um er að ræða eina vél sem er til afhendingar á fyrsta ársfjórðungi 2018 og þrjár á fyrsta ársfjórðungi 2019 að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Tvær vélanna eru Boeing 737 MAX8 og tvær Boeing 737 MAX9. Icelandair hefur jafnframt einhliða rétt á að bæta tveimur vélum við samningana. Leigusalinn er BOCOMM Leasing, dótturfélag Bank of Communications í Kína. Leigusamningarnir eru til tæplega 9 ára.

„Það er ánægjulegt að fjármögnun 737MAX vélanna gengur samkvæmt áætlun. Vinna við fjármögnun annarra véla sem afhenta verða 2018 og 2019 stendur yfir og gengur vel.“ Segir Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group.

„Við erum afar ánægð með að geta boðið Icelandair sölu og endurleigulausn sem hentar félaginu og að Icelandair bætist í hóp alþjóðlegra viðskiptavina okkar. Við hlökkum til að sjá flugvélarnar teknar í notkun og að vinna með Icelandair í framtíðinni.“ Segir Li Ru, framkvæmdastjóri hjá BOCOMM leasing.