Icelandair tók í morgun formlega í notkun fyrstu nýju Boeing 737 MAX flugvélina af 16 sem félagið hefur fest kaup á. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í vikunni hefur ítrekað verið frestaða að taka vélina í notkun.

Flogið var stutt hringflug yfir Íslandi með gesti og fjölmiðlafólk víða að úr heiminum og síðan lent á Reykjavíkurflugvelli þar sem starfsfólki Icelandair var boðið að kynna sér vélina, sem fengið hefur heitið Jökulsárlón.

Nýju MAX vélarnar verða notaðar í almennu áætlunarflugi Icelandair til áfangastaða bæði í Evrópu og Norður-Ameríku. MAX-8 og MAX-9 taka 160 til 178 farþega og bætast við Boeing-757 og Boeing-767 flota félagsins á næstu þremur árum.

Upphafið að endurnýjun flugflotans

„Þetta eru ánægjuleg tímamót, upphafið að endurnýjun flugflota Icelandair sem er stórt og spennandi verkefni“, segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair. „Þessi flugvélagerð hentar leiðakerfi okkar einstaklega vel, gefur okkur tækifæri til að byggja upp nýja markaði og styrkja þá sem fyrir eru.“

Fyrstu farþegaflugin á MAX vélunum frá Boeing voru í maí á síðasta ári og er Icelandair meðal fyrstu flugfélaga til að taka þær í notkun. Um er að ræða nýja útgáfu af Boeing 737, sem eru mest seldu farþegaflugvélar allra tíma. MAX útgáfan hefur bætt um betur og engin flugvél í sögu Boeing hefur selst jafn hratt. Nú liggja fyrir pantanir í rúmlega 4.300 MAX þotur frá flugfélögum í 92 löndum.

Mikil rekstrarhagkvæmni einkennir þessa flugvélagerð og skýrir vinsældir hennar. Eldsneytisnotkun hennar er umtalsvert minni en á eldri gerðum og viðhaldskostnaður sömuleiðis. Þær eru hljóðlátar og ný hönnun farþegarýmis eykur þægindi flugfarþega.
Síðustu vikurnar hafa sérfræðingar í tækniþjónustu Icelandair útbúið vélina í anda félagsins; sett í hana sæti, afþreyingarkerfi og annað sem farþegar Icelandair eiga að venjast segir í fréttatilkynningu frá félaginu.