Icelandic Glacial vatnið er komið í lokaúrslit ásamt Coca Cola og Danone, sem framleiðir Evian, í samkeppni um þekktustu verðlaun sem veitt eru fyrir vatnsframleiðslu í heiminum, að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Verðlaunin kallast BottledWaterWorld Awards og verða úrslit tilkynnt á alþjóðlegri ráðstefnu vatnsframleiðenda í Mexíkóborg næstkomandi fimmtudag. Veitt eru verðlaun fyrir árangur á ýmsum sviðum og er Icelandic Glacial tilnefnt ásamt hinum fyrirtækjunum tveimur í flokknum ?besta framtak til sjálfbærni.? Umhverfismál og sjálfbærni eru meginþemu ráðstefnunnar í Mexíkó að þessu sinni og nýtur þessi verðlaunaflokkur því sérstakrar athygli. Tilnefningar Coca Cola og Danone eru vegna sérverkefna á þessu sviði.

?Þessi tilnefning er sérstaklega mikilvæg fyrir markaðssetningu okkar í Bandaríkjunum, sem er nýhafin. Það er ekki á hverjum degi sem lítið íslenskt vörumerki stendur jafnfætis risum á borð við Coca Cola og Danone, sem meðal annars framleiðir Evian, sem er þekktasti vatnsdrykkur í heimi, og eftir því er tekið. Gríðarleg umhverfisvakning á sér stað í þessum geira og þeir sem skara framúr í sjálfbærni, ekki síst hvað varðar losun gróðurhúsalofttegunda, vekja mikla athygli,? segir Jón Ólafsson stjórnarformaður Icelandic Water Holdings, sem framleiðir Icelandic Glacial í fréttatilkynningunni.

Icelandic Glacial hlaut í júní síðastliðnum vottun frá CarbonNeutral samtökunum í Bandaríkjunum fyrir áætlun um ráðstafanir til kolefnisjöfnunar. Þar á meðal er notkun vistvænna orkugjafa á borð við jarðvarma og rafmagn frá vatnsaflsvirkjunum í verksmiðju félagsins í Þorlákshöfn.