Iðnþing Samtaka iðnaðarins fer fram í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn næstkomandi 8. mars kl. 13.30 - 17.00. „Ísland í fremstu röð – eflum samkeppnishæfnina“ er yfirskrift Iðnþings 2018. Samhliða Iðnþingi gefa Samtök iðnaðarins út ítarlega skýrslu með sama heiti sem fjallar um samkeppnishæfni Íslands og helstu áskoranir.

Fjórir ráðherrar taka þátt í umræðum

Á þinginu koma saman ráðherrar og leiðtogar aðildarfyrirtækja samtakanna til að ræða um samkeppnishæfni Íslands þegar horft er til menntunar, innviða, nýsköpunar og starfsumhverfis. Samkeppnishæfni ríkja breytist stöðugt og því er stefnumótun mikilvægasta verkefni stjórnvalda hverju sinni, segir í fréttatilkynningu.

Með skýrri sýn og eftirfylgni má vinna að raunverulegum umbótum í samfélaginu og efla samkeppnishæfni Íslands. Þannig er lagður grunnur að auknum lífsgæðum landsmanna. Í umræðunum á þinginu á meðal annars að leita svara við því hver eru mikilvægustu verkefnin til að ná árangri og hvernig bregðast þarf við helstu áskorunum.

Í upphafi þingsins flytja ávörp Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þá eru umræður í fjórum pallborðum sem verður stjórnað af þeim Ingólfi Bender, aðalhagfræðingi SI, og Sigríði Mogensen, sviðsstjóra hugverkasviðs SI. Í lok þingsins flytur Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, erindi. Sjá dagskrá hér fyrir neðan.

Dagskrá Iðnþings 2018

  • Kl. 13.30 ÁVARP - Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
  • Kl. 13.45 ÁVARP - Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Kl. 14.00 VIRKJUM TÆKIFÆRIN:

Gestur Pétursson, forstjóri Elkem á Íslandi
Sesselja Vilhjálmsdóttir, stofnandi og forstjóri Tagplay
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

  • Kl. 14.15 FJÁRFESTING Í DAG ER HAGVÖXTUR Á MORGUN

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra
Ólöf Helgadóttir, rafmagnsverkfræðingur hjá Lotu
Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV

  • Kl. 14.30 MENNTAKERFIÐ ER EKKI EYLAND

Finnur Oddsson, forstjóri Origo
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi

  • Kl. 14.45 LEITIN AÐ STÖÐUGLEIKA

Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
Eva Hlín Dereksdóttir, framkvæmdastjóri Raftákns

  • Kl. 15.00 ÁRÆÐNI, NÝ HUGSUN OG DJÖRF FRAMTÍÐARSÝN - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

Að þingi loknu verður boðið upp á léttar veitingar.