Vinnueftirlitið bannaði fyrirtækinu Múr og mál ehf. vinnu á þaki hússins að Eiðistorgi 7 á Seltjarnarnesi þann 29. ágúst síðastliðinn vegna ófullnægjandi fallvarna. Þetta kemur fram á heimasíðu Vinnueftirlitsins.

Banninu var aflétt samdægurs þar sem búið var að framfylgja fyrirmælum Vinnueftirlitsins. Við skoðun daginn eftir, eða þann 30. ágúst síðastliðinn kom í ljós að enn var verið að vinna á þaki hússins án fullnægjandi fallvarna og var lögregla því kölluð til þar sem um ítrekað brot var að ræða.

Vinna var stöðvuð og öll vinna á þökum hússins bönnuð aftur þar til gengið væri frá fullnægjandi fallvörnum þar með talin línunotkun við vinnu á þaki. Einnig var forsvarmönnum fyrirtækisins gert að funda með Vinnueftirlitinu um vinnuverndarstarf fyrirtækisins og öryggismál.

Frekari viðbrögð vegna þessara ítrekuðu brota eru í skoðun hjá Vinnueftirlitinu.