Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir hefur verið ráðin sölu- og markaðsstjóri hjá SagaMedica.

Ingibjörg Ásta hefur þegar hafið störf og mun hafa yfirumsjón með sölu og markaðssetningu félagsins á innlendum og erlendum mörkuðum.

Ingibjörg hefur margra ára reynslu í sölu- og markaðsmálum og hefur m.a. gegnt stöðu markaðsstjóra hjá Into the Glacier, markaðsstjóra Pennans og Eymundsson og forstöðumanns markaðssviðs hjá Sparisjóðnum á árunum 2004-2009.

Ingibjörg Ásta lauk MBA námi úr Háskólanum í Reykjavík árið 2010 og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur úr sama skóla.

SagaMedica er fyrirtæki í íslenskum náttúruvöruiðnaði og hefur fyrirtækið í gegnum tíðina þróað vörur úr íslenskri náttúru.