Ingvar E. Sigurðsson hefur leikið í 31 íslenskri bíómynd frá árinu 1992 þegar hann útskrifaðist úr Leiklistarskólanum. Á sama tíma hefur verið gerð 141 kvikmynd á Íslandi. Ingvar E. Sigurðsson hefur því leikið í 22% af öllum íslenskum bíómyndum sem hafa verið gerðar á Íslandi frá árinu 1992. Þetta kemur fram í Fréttatímanum í dag.

Á sama tíma hefur Ingvar einnig leikið í erlendum myndum, en einna hæst ber á nýrri mynd Baltasars Kormáks, Everest, sem er núna í kvikmyndahúsum. Auk Everest má nefna K-19: The Widowmaker og grínmyndina One Night in Istanbul.