Ingveldur Sæmundsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Framsóknarflokksins.

Ingveldur var áður aðstoðarmaður umhverfis- og auðlindaráðherra frá 2013 til 2017, fyrst Sigurðar Inga Jóhannssonar og síðar Sigrúnar Magnúsdóttur. Þá var Ingveldur kosningastjóri Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður og suður fyrir alþingiskosningarnar 2013.

Ingveldur er með B.Sc. próf frá Copenhagen Business School og diploma í alþjóðlegri markaðshagfræði frá Business Academy Copenhagen North. Þá stundar hún MBA nám við Háskóla Íslands.