Ýmis fyrirtæki sem flytja inn mat hafa orðið fyrir tjóni vegna átta vikna verkfalls starfsmanna Matvælastofnunar, segir í grein Félags atvinnurekenda. Viðkvæm vara á borð við osta og aðrar mjólkurvörur hafi staðið á hafnarbakkanum, runnið út og orðið ósöluhæf.

Þá segir að nú hafi bæst við tjónið sú staðreynd að sum fyrirtæki geta ekki fullnýtt innflutningskvóta sinn á búvörum. Atvinnuvegaráðuneytið hafi synjað beiðni Innness ehf. um að tollkvóti sem gefinn er út samkvæmt WTO-samningnum verði framlengdur um átta vikur, eða þann tíma sem verkfallið stóð.

Tollkvótar Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO) eru gefnir út fyrir tímabilið 1. júlí til 30. júní árið eftir og hefur undanfarin ár verið venja að ráðuneytið framlengi heimild til innflutnings á lægri tollum, sem tollkvótarnir heimila, út júlí. Gefur það fyrirtækjum svigrúm til að koma sendingum sem pantaðar voru undir lok tímabilsins til landsins.

Innnes óskaði í ár eftir framlengingu tollkvóta í átta vikur umfram það sem venjan er til að mæta áhrifum verkfallsins, en á meðan því stóð þorðu fyrirtæki ekki að flytja til landsins af viti vörur með takmarkað geymsluþol. Atvinnuvegaráðuneytið synjaði hins vegar þessari beiðni og segir FA að enginn rökstuðningur hafi verið veittur. Því stefnir í að Innnes geti ekki fullnýtt tollkvóta sem það greiddi fyrir útboðsgjald.

Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, segir við vefsíðu félagsins að viðbrögðin séu enn eitt dæmi um stífni ráðuneytisins.

„Þessi viðbrögð atvinnuvegaráðuneytisins eru því miður enn eitt dæmið um að ráðuneytið sýnir hámarksstífni og forðast eins og heitan eldinn að hliðra til fyrir þeirri litlu erlendu samkeppni sem innlendir búvöruframleiðendur fá,“ segir Ólafur.

„Það er löngu orðið tímabært að taka allt þetta kerfi sem varðar innflutningsheimildir á búvörum til gagngerrar endurskoðunar.“