Íris Sigtryggsdóttir hefur verið ráðin fræðslustjóri Advania á Íslandi. Hún mun hafa yfirumsjón með allri almennri starfsmannafræðslu, sérfræði- og stjórnendaþjálfun í fyrirtækinu auk þess að stýra margvíslegri þjálfun og fræðslu fyrir viðskiptavini Advania hérlendis.

Íris var áður forstöðumaður markaðsmála hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Greenqloud frá 2014 til 2017 og verkefnastjóri mannauðs- og markaðsmála hjá Þekkingu frá 2013 til 2014. Þá sinnti hún mannauðs-, markaðsmálum og viðburðastjórnun hjá fjárfestingarfyrirtækinu Sorrento Asset Management og Northern Trust Corp. í Dublin á Írlandi. Íris lauk B.Sc. prófi í viðskiptafræði frá University College Dublin og diplómanámi í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands.