Þann 1. mars mun ný gjaldskrá Isavia fyrir langtímastæði við Keflavíkurflugvöll taka gildi en henni samkvæmt mun verð fyrir hvern dag í stæði hækka um 500 krónur á dag úr 1.250 krónum upp í 1.750 krónur fyrir þá sem borga við hlið án þess að bóka fyrirfram.

Þeim sem bóka fyrirfram með nýju bókunarkerfi á vef Keflavíkurflugvallar munu hins vegar geta geymt bílana á gamla verðinu að því er segir í fréttatilkynningu.

Þannig geta þeir farþegar sem eru á leið í flug tryggt sér bílastæði á betra verði en þeir sem borga við hlið. Isavia segir að með nýja bókunarkerfinu minnka auk þess líkur á því að stæðin fyllist á álagstímum á flugvellinum.

Lægsta verð sem er í boði núna ef bókað er á vefnum er hins vegar 940 kr. á dag, en verðið fer eftir eftirspurn á hverjum tíma. Isavia segir að stór hluti farþega sem bóka bílastæði fá betra meðalverð á dag en áður hefur boðist auk þess sem farþegar geta gengið að bílastæðinu vísu.

Kerfið er þekkt á flugvöllum víða um heiminn og hefur að sögn Hlyns Sigurðssonar, framkvæmdastjóra viðskiptasviðs Keflavíkurflugvallar, verið í þróun og innleiðingu hjá Isavia í meira en ár. Hafa kerfi sem þessi reynst afar vel á erlendum flugvöllum og þá sérstaklega þegar kemur að aðgangsstýringu á bílastæðin. „Þessi nýja leið mun vonandi verða til þess að Íslendingar nýti sér hana, bæði til að spara og sýna fyrirhyggju þegar kemur að ferðalaginu. Verðið sem viðkomandi fær fer þá eftir framboði og eftirspurn, það er hversu margir hafa bókað á undan á sama tíma. Því gefur augaleið að til að fá bílastæðið á sem bestu kjörum á álagstímum eins og um páska, í sumar og um jól er best að bóka með góðum fyrirvara,“ er haft eftir Hlyni í fréttatilkynningu.