Eins og Viðskiptablaðið greindi frá íhugar Skúli Mogensen, forstjóri WOW air, að flytja hluta starfsemi flugfélagsins til annars flugvallar í því markmiði að fullnýta sóknarfæri sem stærð Leifsstöðvar gæti haft hamlandi áhrif á.

Nú hafa forsvarsmenn Isavia lýst yfir sambærilegum áhyggjum í viðtali við Túrista.is.

„Við hjá Isavia erum að mörgu leyti sammála áhyggjum Skúla Mogensen forstjóra WOW Air. Fjölgun farþega hefur verið langt umfram allar spár og talsvert umfram áætlanir WOW, Icelandair og annarra flugfélaga sem fljúga um Keflavíkurflugvöll," segir Guðni Sigurðsson, talsmaður Isavia.

„Ný farþegaspá sem Isavia kynnti nú í lok nóvember gerir þannig ráð fyrir um 8 milljónum farþega árið 2018. Það er rétt að þær forsendur sem voru grundvöllur að þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar gerðu ráð fyrir sex milljónum farþega árið 2018 en þær spár hafa breyst með breyttum áætlunum flugfélaganna.”

Guðni telur farþegaaukninguna vera langt á undan áætlun, og telur ráðlegt að gera allt sem hægt er til að auka afkastagetu flugvallarins.

„Nýjustu tölur frá flugfélögunum sýna að yfir sex milljónir farþega munu ferðast um flugvöllinn strax á næsta ári. Þetta þýðir að farþegaaukningin er tveimur árum á undan áætlun og að við þurfum að hugsa hratt og gera allt sem við getum til að auka afkastagetuna á mestu álagstímunum."