Á mánudaginn síðastliðinn kom til landsins Yoshihide Hata forstjóri Nippon Ham, sem er eitt stærsta fyrirtæki Japans á sviði ferskra og frosinna matvæla og jafnframt fjórði stæsti kjötframleiðandi í heims. Þar starfa 30.000 manns og fyrirtækið veltir um 1.400 milljörðum árlega. Heimsókn hans tengist undirbúningi framleiðslu og sölu á Ísey Skyr í Japan, en dótturfyrirtæki Nippon Ham, mjólkurvörufyrirtækið Nippon Luna gerði framleiðslu og vörumerkjasamning um Ísey Skyr við MS á síðasta ári. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Í tilkynningunni segir að Nippon Ham hafi fyrr á árinu tekið ákvörðun um að gera Ísey Skyr að sinni aðal heilsuvöru sem sé mjög þýðingarmikið fyrir alla markaðssókn sem viðkemur Ísey Skyri þar í landi. Áætlanir geri ráð fyrir að mikill kraftur verði settur í markaðssetninguna og að koma Ísey vel á kortið áður en Ólympíuleikarnir hefjast í Tókýó árið 2020.

Verið sé að ljúka byggingu nýrrar verksmiðju í nágrenni Tókýó sem hefur framleiðslu á Ísey Skyr fyrir Japans markað á næstu mánuðum. Heimsókn forstjóra Nippon Ham hafi því mikla þýðingu fyrir markaðssetningu á Ísey Skyr í Japan, þar sem sterk staða Nippon Ham geti mögulega komið vörunni í allt að 50.000 verslanir í Japan á næstu árum.

Guðlaugur Þór Þórðarsson, utanríkisráðherra Íslands, tók í vikunni á móti forstjóranum ásamt Kitagawa Yasuhiku, sendiherra Japans á Íslandi.  Guðlaugur var viðstaddur undirritun uupphaflega samningsins í Japan 29.maí s.l. og hefur lagt mikla áherslu á viðskiptasamstarf ríkjanna. Einnig átti Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð ferðamála-iðnaðar og nýsköpunarráðherra Íslands fund með forstjóra Nippon Ham s.l. mánudag. Þórdís var í Japan í september 2018 og hefur einnig lagt mikla áherslu á viðskiptasamstarf ríkjanna m.a. á sviði jarðhita, nýsköpunar og ferðamála.

Forstjóri Nippon Ham heimsótti í ferðinni afurðastöð MS á Selfossi og höfuðstöðvar MS í Reykjavík þar sem viljayfirlýsing um frekara samstarf í Asíu var undirritað af Ara Edwald forstjóra MS og Yoshihiko Ishii forstjóra Nippon Luna.