Samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum fyrir árið 2016 var landsframleiðsla á mann á Íslandi 28% yfir meðaltali ESB ríkjanna og í fimmta sæti Evrópuríkjanna 37 en var í tíunda sæti árið 2015 og hækkar því um fimm sæti að því er kemur fram á vef Hagstofunnar .

Lúxemborg var í fyrsta sæti þar sem landsframleiðsla á mann var 158% yfir meðaltali ESB ríkjanna og Írland í öðru sæti, 83% yfir meðaltalinu. Lúxemborg sker sig úr, en líta verður til þess að fjöldi fólks vinnur og verslar í landinu og leggur til landsframleiðslunnar, en býr utan þess og telst því ekki til íbúa.

Samkvæmt endanlegum tölum fyrir árið 2014 var magn vergrar landsframleiðslu á mann á Íslandi 19% yfir meðaltali Evrópusambandsríkjanna 28. Ísland var ellefta í röð ríkjanna 37.

Þegar kemur að einstaklingsbundinni neyslu á mann er Ísland hins vegar í 8. Sæti og því þremur sætum neðar en þegar kemur að landsframleiðslu á mann. Ísland er  14% yfir meðaltali ESB ríkjanna þegar kemur að neyslu.

Landsframleiðsla á mann í Evrópuríkjum árið 2016
Landsframleiðsla á mann í Evrópuríkjum árið 2016
© Skjáskot (Skjáskot)