Fyrirtæki, háskólar og stofnanir á Íslandi og í Québec-fylki í Kanada hafa gert samning um samstarf á sviði rannsókna og þjálfunar á sviði sjálfbærrar orku á norðurslóðum. Philippe Couillard, forsætisráðherra Québec, var viðstaddur þegar fulltrúar samningsaðila frá Québec og Íslandi skrifuðu undir samninginn á Arctic Circle ráðstefnunni í Hörpu.

Frá Íslandi er um að ræða Landsvirkjun, Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Frá Québec er um að ræða vísindarannsóknaháskólann INRS (Institut national de la recherche scientifique), Laval háskólann, orkufyrirtækið Hydro-Québec og Ouranos, samsteypu háskóla, orkufyrirtækja og ríkisstofnana í Kanada sem hefur með höndum rannsóknir á loftslagsbreytingum og sjálfbærri orkunýtingu.

Samkvæmt samningnum munu aðilar stofna til sameiginlegra rannsókna á sviði loftslagsmála og sjálfbærrar nýtingar. Þá munu aðilar einnig hafa samstarf um umsjón háskólastúdenta og starf fræðimanna og sérfræðinga og skipuleggja sameiginleg námskeið fyrir fræðimenn og nemendur, svo eitthvað sé nefnt. Auk þess munu þeir skiptast á kennslugögnum, fræðigreinum, líkönum og hugbúnaði og hafa samstarf um að leita fjármögnunar á rannsóknastarfi, heima fyrir og á alþjóðlegum vettvangi.

Í fréttatilkynningu Landsvirkjunar segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, um samninginn:

„Það er okkur hjá Landsvirkjun mikil ánægja að fá að taka þátt í þessu samstarfi með virtum stofnunum og fyrirtækjum í Québec og hér heima. Viðfangsefnin hér og þar eru um margt hin sömu – nýting endurnýjanlegra og sjálfbærra orkugjafa og baráttan við loftslagsbreytingar, sem Québec-búar gera sér grein fyrir, eins og við, að er eitt af stærstu málum samtímans og getur skipt sköpum fyrir framtíð okkar allra.“