Verndartollar ESB á stálvörur – sem eru svar við samskonar tollum sem bandarísk stjórnvöld ákváðu að leggja á fyrr á árinu – verða ekki lagðir á Ísland, vegna EES-samningsins. Undanþágan skapar fordæmi og mun einnig gilda um mögulega verndartolla á innflutning á áli til ESB sem nú eru til skoðunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, segir að slíkir tollar myndu hafa mikil áhrif hér á landi, enda sé Evrópusambandið okkar helsti útflutningsmarkaður. EES-samningurinn muni því tryggja íslenskum álframleiðendum áframhaldandi aðgang að markaðnum.

Verndartollur ESB verður lagður á 23 stálvörur og mun nema 25%. Hann tekur gildi 19. júlí næstkomandi, en um tímabundnar aðgerðir er að ræða.

Cecilia Malmström, viðskiptamálastjóri ESB, segir að verndartollar Bandaríkjanna á stál geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir stáliðnað ESB-ríkjanna og starfsmenn í stáliðnaði. Því sé enginn annar möguleiki í stöðunni en að leggja á verndartolla til að vernda innri markaði fyrir holskeflu af innflutningi á stáli. Hún leggur hins vegar áherslu á að aðgerðirnar tryggi að innri markaður ESB haldist opinn.