Íslandsbanki hefur bætt við sig 301.410 hluti í Tryggingamiðstöðinni (TM) eða 0,44% af útistandandi hlutum félagsins. Á bankinn nú 5,43% eignarhlut í TM.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kauphöllinni , en miðað við 33,15 króna lokagengi bréfa í tryggingafélaginu í dag kostaði hluturinn rétt tæpar 100 milljónir króna. Íslandsbanki er því kominn yfir 5% eignarmörk, sem eru tilkynningarskyld.