Hagnaður Íslandsbanka eftir skatta á fyrstu níu mánuðum þessa árs nam um 9,2 milljörðum króna samanborið við 10,1 milljarð króna á sama tímabili í fyrra. Hagnaður bankans eftir skatta á þriðja ársfjórðungi þessa árs nam 2,1 milljarði króna og er hann sambærilegur miðað við sama tímabil í fyrra.

Hreinar vaxtatekjur voru 23,6 millarðar króna á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við 22,7 milljarða króna á sama tímabili í fyrra sem er 4,3% hækkun á milli ára og var vaxtamunur 2,9%.

Hreinar þóknanatekjur voru 8,7 millarðar króna miðað við 10,1 milljarð króna sem er 13,5% lækkun frá sama tímabili í fyrra sem má að mestu rekja til lækkunar á þóknanatekjum í tveimur dótturfélögum bankans.

Virðisbreyting útlána skilaði 1,9 milljarða hagnaði á tímabilinu samanborið við 0,6 milljarða hagnað á 9M17.

„Hagnaður Íslandsbanka á fyrstu níu mánuðum ársins var í takt við væntingar og nam 9,2 milljörðum íslenskra króna sem samsvarar 7,1% arðsemi eigin fjár auk þess sem arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi var 9%. Ágætur gangur var í þóknanatekjum sem hækkuðu um 6,1% ef horft er til móðurfélags og Íslandssjóða auk þess sem kostnaðarhlutfall var ekki langt frá langtíma markmiði bankans um 55% kostnaðarhlutfall. Aftur á móti leiddu minni umsvif hjá tveimur af dótturfélögum bankans til 13,5% tekjusamdráttar hjá samstæðu á milli ára auk kostnaðarhlutfalls upp á 65,6% á samstæðugrunni.

Áframhaldandi kraftur var í útlánum á þriðja ársfjórðungi sem hafa aukist um 10,6% á fyrstu níu mánuðum ársins eða um rúma 80 milljarða króna og kemur traust lánasafn bankans áfram mjög vel út í alþjóðlegum samanburði. Lausafjárstaða bankans er sterk í bæði íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum og hefur fjármögnun bankans verið farsæl frá áramótum og gaf bankinn meðal annars út sitt annað víkjandi skuldabréf í lok sumars. Ennfremur þá lækkaði Fjármálaeftirlitið í september heildarkröfu um eiginfjárgrunn úr 19,8% í 18,8% fyrir Íslandsbanka sem er til marks um að heldur hafi dregið úr áhættu bankans.

Mikil umsvif hafa verið á gjaldeyrismarkaði í haust og hefur velta verið hæst hjá gjaldeyrismiðlun bankans síðustu mánuði. Íslandssjóðir náðu sinni hæstu markaðshlutdeild á íslenskum sjóðamarkaði og var fasteignafélagið FAST-1 sem var í stýringu Íslandssjóða selt með góðri ávöxtun fyrir fjárfesta.

Í haust tók Íslandsbanki í notkun nýtt grunnkerfi fyrir innlán og greiðslumiðlun ásamt því að fjárfesta í nýrri tækni sem mun gera hann betur í stakk búinn við að takast á við breyttan bankaheim. Sem dæmi um stafrænar nýjungar bankans má nefna að Íslandsbanki var nýlega fyrstur íslenskra banka til að opna fyrir öruggt auðkennanlegt netspjall á vef sínum en þessi þjónustuleið hefur notið mikilla vinsælda víða um heim og í næstu viku mun bankinn byrja að bjóða upp á snertilausar greiðslur með farsíma.

Við erum sannfærð um að fjárfestingar bankans í öflugum tæknigrunni og stafrænum lausnum ásamt persónulegri þjónustu muni viðhalda framtíðarsýn bankans um að vera leiðandi í fjármálaþjónustu á Íslandi," segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka," segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.