Íslandsbanki opnar í dag bankann fyrir samstarfi um þróun á framtíðar fjártæknilausnum þar sem bankinn mun veita þriðja aðila aðgengi að gögnum og upplýsingum í gegnum öruggar vefþjónustur. Um er að ræða breytingar í tengslum við nýja Evróputilskipun, sem kölluð er PSD2.

Í tilkynningu frá Íslandsbanka segir að þetta séu tímamót fyrir íslenska fjármálaþjónustu þar sem breytingin mun greiða leið nýrra lausna og hvetja til nýsköpunar á virðisaukandi þáttum.

Undirbúningsvinna hefur staðið yfir í Íslandsbanka til að aðlaga bankann að þeim breytingum sem PSD2 felur í sér. Með tilkomu PSD2 er gert ráð fyrir að samkeppni aukist á fjármálamarkaði, en samkvæmt tilskipuninni verður bönkum skylt að veita öðrum fyrirtækjum aðgang að sinni greiðslumiðlun. Tilskipunin hefur þegar tekið gildi innan ESB og tekur gildi hér á landi á næsta ári.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir að markaðstorgi bankans þar sem hægt verður að nýta gögn bankans til þróunar. Staðfestir Third Party Payemnt Service Provider (TPP) geta sótt um upplýsingar og verður aðgengi aðeins veitt í gegnum vefþjónustur  (Application Programming Interface).

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, segir í tilkynningu bankans að PSD2 tilskipunin muni gjörbreyta fjármálamörkuðum.

„Íslandsbanki er fyrsti bankinn hér á landi til að opna bankann en ný tilskipun Evrópusambandsins mun gjörbreyta fjármálamörkuðum. Við höfum undirbúið okkur vel og erum spennt að fylgjast með nýjum fjártæknilausnum sem munu skapast við þessa breytingu. Við höfum átt gott og farsælt samstarf við nýsköpunarfyrirtæki eins og Memento og Meniga. Það er von okkar að við munum starfa með fleiri aðilum að öflugum fjártæknilausnum sem mun bæta þjónustu okkar enn frekar.“