Í kjölfar allmargra kvartana og ábendinga frá keppinautum Íslandspóst á liðnum árum hefur Íslandspóstur og Samkeppniseftirlitið komist að sátt um ákveðin skuldbindandi skilyrði sem fyrirtækið þarf að hlíta. Þetta kemur fram í frétt frá eftirlitinu .

Með sáttinni viðurkennir Íslandspóstur þó ekki nein brot á samkeppnislögum, en málið snýst um að ekki hafi verið nægur aðskilnaður milli starfsemi fyrirtækisins sem er á samkeppnismarkaði og starfsemi sem fyrirtækið hefur einkarétt á að reiða af hendi.

Þau atriði sem fyrirtækið þarf að breyta eru:

  • Mælt er fyrir um að tiltekin samkeppnisstarfsemi Íslandspósts verði ávallt rekin í aðskildum dótturfélögum. Í þessu skyni þarf Íslandspóstur að færa hraðpóstþjónustu sína út úr móðurfélaginu inn í aðgreint dótturfélag.
  • Mælt er fyrir um skýra aðgreiningu innan Íslandspósts á milli söluþáttar starfseminnar og kostnaðarúthlutunar. Aðgreiningin vinnur almennt gegn hagsmunaárekstrum og stuðlar að gagnsæi í verðlagningu á vörum. Er með þessu m.a. stuðlað að því að úthlutun kostnaðar félagsins vegna einkaréttarstarfsemi annars vegar og samkeppnisstarfsemi hins vegar eigi sér stað með hlutlægum hætti og raski ekki samkeppni. Aðgreiningin er m.a. tryggð með aðskilnaði í daglegri stjórnun og aðgangsstýringu í húsnæði og upplýsingakerfum.
  • Skipuð skal sérstök eftirlitsnefnd sem fylgir sáttinni eftir, tekur við kvörtunum og tekur ákvarðanir í samræmi við fyrirmæli sáttarinnar. Nefndin verður hluti af skipulagi fyrirtækisins og skipuð af Íslandspósti, en tilnefningu nefndarmanna skal bera undir Samkeppniseftirlitið til samþykktar eða synjunar. Tveir af þremur nefndarmönnum skulu vera óháðir Íslandspósti.
  • Samkeppnisstarfsemi sem er óskyld meginstarfsemi fyrirtækisins verði rekin í dótturfélagi, samkvæmt nánari fyrirmælum eftirlitsnefndar.

Jafnframt skal gera sérstaka grein fyrir samkeppnisstarfsemi Íslandspósts á heimasíðu félagsins. Einnig skal gera sérstök rekstraruppgjör fyrir hverja slíka samkeppnisstarfsemi auk þess að kveðið er á um viðbrögð við tapi á samkeppnisstarfsemi innan móðurfélags.

Íslandspósti verður einnig gert óheimilt að veita dótturfélögum ívilnandi fyrirgreiðslu í formi lána undir markaðsvöxtum, sem og að viðskipti móður- og dótturfélags skuli fara fram á viðskiptalegum forsendum líkt og um væri að ræða viðskipti milli ótengdra aðila.

Dótturfélög skuli vera sjálfstæði í rekstri og stjórnun og að keppinautar njóti sambærilegra skilmála og kjara í viðskiptum ásamt banni við ómálefnalegri höfnun á viðskiptum við keppinauta.

Loks skal Íslandspóstur inna af hendi fjölpóstdreifingu fyrir aðra póstrekendur á sömu kjörum og skilmálum og Íslandspóstur sjálfur nýtur á minni þéttbýlisstöðum og í dreifbýli. Loks er mælt fyrir um gerð samkeppnisréttaráætlunar fyrir Íslandspóst.