Hagnaður Íslenskra verðbréfa árið 2016 var um 116 milljónir króna eða sem nemur rúmlega 20% arðsemi eigin fjár, samanborið við 47 milljón króna hagnað árið 2015.

Hreinar rekstrartekjur félagsins jukust um 33% milli ára og námu 712 milljónir króna samanborið við 535 milljónir króna árið 2015. Eigið fé félagsins í lok árs 2016 nam 590 milljónum króna og eiginfjárhlutfall samstæðunnar var í árslok 29%.

Eignir í stýringu hjá Íslenskum verðbréfum jukust um 10% og voru 129 milljarðar í árslok 2016 en þær námu 117 milljörðum í árslok 2015.  Alls voru rúmlega 2 þúsund einstaklingar og lögaðilar með fjármuni í eignastýringu og vörslu hjá félaginu.

Eiríkur S. Jóhannsson formaður stjórnar segir að árið 2016 hafi verið ár breytinga hjá félaginu í kjölfar þess að nýir eigendur komu að félaginu í lok árs 2015.  „Stefna nýrra eigenda er að styðja félagið til áframhaldandi vaxtar og hafa verkefni félagsins á árinu 2016 tekið mið af því.  Sú grunnvinna sem hefur átt sér stað frá því að nýir eigendur komu að félaginu er farin að skila sér í fjölgun verkefna og viðskiptavina og á eftir að skila enn sýnilegri árangri á næstu mánuðum.  Sú staðreynd að félagið fagnar 30 ára afmæli sínu á árinu gefur félaginu sérstöðu á íslenska markaðnum og sterk staða þess gefur félaginu mikil tækifæri til áframhaldandi vaxtar á næstu misserum.“

„Rekstur Íslenskra verðbréfa gekk vel á árinu 2016. Við sáum árangur breytinga og vöruþróunar byrja að skila sér þar sem tekjur jukust um 33% og hagnaðar meira en tvöfaldaðist. Umsvif félagsins jukust töluvert á flestum sviðum, starfsmönnum fjölgaði og nýjar vörur og þjónusta voru þróuð sem munu koma til með að mynda breiðari og sterkari grunn fyrir rekstur félagsins í framtíðinni.  Árið var til að mynda fyrsta rekstrarár dótturfélaganna ÍV ráðgjafar ehf. og ÍV fjárfestinga hf. sem nú mynda samstæðu Íslenskra verðbréfa ásamt ÍV sjóðum hf. en rekstur allra dótturfélaga gekk vel á árinu.  Íslensk verðbréf fagna 30 ára afmæli sínu um þessar mundir og stefnir félagið á að vera virkur þátttakandi í fjárfestingum í íslensku atvinnulífi. Mikil vöruþróun og kraftur er í félaginu og verkefnum og viðskiptavinum fjölgar. Það eru því spennandi tímar framundan og mikill meðbyr með því starfi sem nú er verið að vinna“ segir Sigþór Jónsson framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa.